Upplýsingar

 

Er hægt að skila vörum?

Kaupandi hefur 14 daga til að skipta vörum í aðrar vörur að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með og kaupandi þarf sjálfur að bera kostnað á endursendingu. En ef vara reynist gölluð berum við ábyrgð á kostnaðinum. Því miður er ekki hægt að skila undirfatnaði né tilboðs eða útsöluvöru! Ath: ekki fæst endurgreidd vara nema hún sé gölluð eða slíkt. Alltaf er inneignarnóta í stað vöru.


Nánar um skil á útsölu kjólum -  

Útsölu eða tilboðsvörum fæst því miður ekki skipt né skilað. Þessir kjólar eru ónotaðir, en sumir þeirra hafa verið mátaðir. Kjólarnir eru seldir þess vegna á útsöluverði. og seljast eins og þeir eru. Við bjóðum þetta frábæra verð á þeim en þess vegna tökum við því miður ekki ábyrgð á því ef gæti verið lítisháttar blettur eða óhreinindi í kjólnum sem sjálfsagt er lítið mál að ná úr og einnig ef kynni að leynast saumspretta. 


Hversu mikill er sendingarkostnaður á vörum?

Sendingarkostnaður er 750 kr. sama verð út um allt land.


Sendið þið til annarra landa?

Já, við gerum það. Endilega hafið samband við okkur vegna þessa.


Hversu langur er afhendingartíminn og hver er afhendingarmátinn?

Hægt er að velja um að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða sækja til okkar. Ef valið er að sækja til okkar í Borgartún 23, þá er pöntunin tilbúin eftir c.a sólarhring, ef mikið liggur á þá endilega hringja í 561-1300.

Pantanir eru teknar til samdægurs eða daginn eftir að pöntun er lögð inn í netverslun brudarkjolar.is. Ef vara er ekki til á lager höfum við samband við kaupanda. Eftir að pöntun fer úr húsi þá tekur það Íslandspóst 1-3 virka daga að koma henni til skila.

Vegna breytinga og hækkana á verði hjá Íslandspósti eru pakkar nú sendir á næsta pósthús í hverfi viðtakanda, þar með þarf viðtakandi að sækja pakkann þangað. Kr: 750.-

En ef viðtakandi vill fá sendan pakkan heim til sín er kostnaður aukalega 450 kr. þá samtals kr: 1.200.-.- þarf þá að hafa samband við okkur vegna þessa. (Keyrt heim = Íslandspóstur keyrir pakka til heimila á milli kl. 17:00-22:00 á kvöldin. Þetta þýðir að ef þú átt von á pakka eða ábyrgðarbréfi með Íslandspósti, þarftu ekki að fara á næsta pósthús til að ná í sendinguna þína heldur koma þeir með sendinguna heim til þín)

Eftir að pöntun fer úr húsi þá tekur það Íslandspóst 1-3 virka daga að koma henni til skila.

Ef enginn er heima þegar starfsmaður Íslandspósts kemur er viðkomanda tilkynnt á hvaða pósthúsi hægt er að nálgast sendinguna.

Sendingarkostnaður er 750.- krónur ef greitt er með greiðslukorti eða millifærslu. Þessir liðir koma skýrt fram þegar þú afgreiðir úr körfunni þinni. Við minnum þig enn og aftur á að ef þú ert að kaupa fleiri en eina vöru að velja vörurnar í sömu körfuna svo þú þurfir ekki að borga margfaldan sendingarkostnað.


Öryggi þegar greitt er með kreditkorti?

Greiðslusvæðið er inni á öruggari Greiðslusíðu hjá Borgun.

Þegar ýtt er á greiðsluhnappinn til að ljúka greiðslu er kaupandinn fluttur yfir á greiðslusíðuna sem er einföld og þægileg leið til að greiða með korti. Greiðslusíðan uppfyllir allra ströngustu öryggiskröfur. Þær eru skannaðar af Trustwave, sem er stærsti og virtasti PCI-DSS ráðgjafi heims.

MVJDDA


Er hægt að greiða fyrir vörur með öðru en kreditkorti?

Já, líka er hægt að borga með millifærslu, inn á 0545-26-58010. Kt: 580108-1050. Sá valmöguleiki kemur upp þegar gert er upp vörukörfuna.


Hvernig veit ég hvort að pöntun mín hefur skilað sér til ykkar?

Þú færð sent e-mail með staðfestingu frá okkur.



Hvernig má þvo kjólinn?

Hann má ekki þvo með öðrum fatnaði.

Mælt er með hreinsun hjá fagaðila.

Efni: 100%polyester.

handþ   Handþvottur, hitastig vatnsins 40°C Flíkina má hvorki nudda né þeytivinda.

klor Má ekki bleikja með klór

 dry   Má hengja til þerris

iron  Hitastig straujárns 120°C Nælon- og akrýlefni.

Vörukarfa

Fjöldi 0
Samtals verð 0 ISK

Skoða körfu

Áhugavert